Spurningar

Vinsamlegast fylltu út þetta form: http://bit.ly/menntavarp_about

Eftir viðtalið bið ég þig að senda inn þína upptöku (t.d. Voice Memos í iPhone) hér inn: http://bit.ly/menntavarp_audio


Menntavarp

  1. Skemmtilegasta minningin þín úr þinni eigin menntun/skólagöngu
  2. Hvað er það mikilvægasta sem mamma þín eða pabbi kenndi þér?
  3. Hvað einkenndi uppáhalds kennarann þinn?
  4. Af hverju varðstu kennari? / Hvað viðheldur áhuganum/eldinum?
  5. Ef þú gætir gefið nýútskrifuðum kennara eitt ráð, hvað yrði það?
  6. Hvað er augljóst fyrir þér (um skólastarf/menntun/hvernig við lærum) sem virðist þó hulið öðrum?
  7. Hvað er skemmtilegasta/besta verkefni sem þú hefur gert með nemendum?
  8. Hvað er gert í skólastarfi sem ætti að hætta strax/draga mjög úr? / Ef þú gætir fjarlægt einn hlut úr skólastarfi, hvað yrði það og af hverju?
  9. Hvað ættum við að leggja meiri áherslu á í skólastarfi (og hvernig)? / Ef þú gætir byggt skólastarf í kringum einn hlut, hvað yrði það og af hverju?
  10. Hvað ertu að fást við núna? (Hvað fangar huga þinn?)
  11. Ef þú fengir að kenna eitt efni/námskeið hvaða aldri og hvaða efni? ...og af hverju?
  12. Nefndu eitthvað sem þú gerðir áður í kennslu en skilur ekki í dag af hverju þú gerðir það.
  13. Hvað hefur þú áhuga á sem fæstir vita hvað er?
  14. Uppáhalds app/verkfæri
  15. Hvernig byrjar þú daginn þinn?
  16. Hvernig (og hvar) lærir þú nýja hluti?
  17. Hvaða grein hefur þú deilt oftast/sent á vini?
  18. Bestu nýlegu kaupin þín undir 10.000?
  19. Þín besta fjárfesting í tíma/peningum?
  20. Ef líf þitt væri bók, hver væri titillinn?
  21. Hvaða litlir hlutir gera daginn þinn betri?
  22. Það eru tvær tegundir af fólki í heiminum, hvaða tegundir eru það?
  23. Ef einhver lykt væri tengd við barnæskuna þína, hvaða lykt væri það?
  24. Hverju ertu spenntust/-astur fyrir á næstu 10 árum?
  25. Hvað myndir þú segja sjálfum þér fyrir 10 árum?
  26. Hvað vilt þú vita meira um?
  27. Hvar getur fólk lært meira um þig?